Bætt útlit og leiðrétting bits með zirkóníum-tannsmíði
Verkefnið sem þurfti að leysa
Viðskiptavinurinn, sem er 66 ára karlmaður, leitaði til okkar með flókið tannheilsuvandamál. Tennur hans voru farnar að láta verulega á sjá. Hann hann hafði tapað mörgum tönnum og þær sem voru eftir voru litu ekki vel út. Hann var með vandamál við að tyggja og bitið var skakkt.. Markmið okkar var að skapa fallegt bros og endurheimta rétt bit.
Lausnin
Í fyrstu lotu fjarlægðum við allar tennur í efri gómi sem ekki var hægt að bjarga. Til að stuðla að bata viðskiptavarins fékk hann strax bráðabirgagóm sem strax breytti útliti hans og almennri líðan til hins betra.
Í seinni heimsókn lauk meðferðinni með uppsetningu varanlegs góms smíðuðum úr zirkónium efni og í neðri góm fékk hann stakar krónur á sínar tennur úr sama efni.
Árangurinn
Meðferðin tók fjóra mánuði og skilaði fullri endurheimt á bit- og tyggigetu. Viðskiptavinurinn öðlaðist aftur sjálfstraust sitt og lífsgæði.