Betra bros með tannplöntum og Sirkóníum brúm

Verkefnið sem þurfti að leysa

Viðskiptavinur, 61 árs karl leitaði til okkar vegna þess að hann hafði misst tennur og þær sem enn voru, voru útlitslega illa farnar. Þetta hafði neikvæð áhrif á útlit hans og ekki síður á að tyggja og tala. Að lokinni ítarlegri skoðun útbjuggum við meðferðaráætlun um að byggja upp allar tennur skref fyrir skref.

Lausnin

Ónýtar tennur voru fjarlægðar og tveimur tannplöntum komið fyrir í efri gómi og fjórum í þeim neðri.  Þeir gréru vel og gómarnir urðu heilbrigðir á ný. Í lok meðferðar var heilli sirkóníum brú komið fyrir á tannplöntunum tveimur og upprunalegum tönnum í efri gómi og sirkoníum brúm var komið fyrir á jaxlasvæðum í neðri gómi. Sirkóníum efnið er sterkt, endingargott og náttúrulega fallegt. Þetta var því mjög ákjósanleg og áræðanleg lausn.

Árangurinn

Með nákvæmri áætlun og hnitmiðaðri meðferð reyndust nýju tennurnar passa fullkomlega og leystust þannig vandamál tengd útliti og því að tyggja og tala. Í kjölfar meðferðarinnar öðlaðist viðskiptavinur okkar verulega bætt lífsgæði með sterkar og náttúrulega útlítandi fastar tennur. 

Pantaðu núna!

Ertu með spurningar?