Heildar enduruppbygging: Efri gómur með All-on-4®, neðri gómur brú

Verkefnið sem þurfti að leysa

Sextugur viðskiptavinur leitaði til okkar með verulegar áhyggjur af útliti tanna og tannmissi að hluta. Ítarleg skoðun leiddi í ljós langt genginn tannholdssjúkdóm í efri gómi og því reyndist ómögulegt að bjarga tönnunum – því var tannúrdráttur óhjákvæmilegur.

Lausnin

Markmið okkar var að ná fram fullkominni enduruppbyggingu bæði hvað varðar virkni og útlit. Fyrir efri kjálka völdum við All-on-4® góm, lausn sem veitir framúrskarandi langvarandi stöðugleika með færri tannplöntum en hefðbundnar aðferðir – og skilar jafnframt árangri hraðar. Í neðri gómi var gert ráð fyrir heilli sirkóníum brú.
Í fyrstu heimsókn voru þær tennur sem ekki var hægt að bjarga fjarlægðar. Fjórum tannplöntum var komið fyrir í efri gómi eins og All-on-4® meðferðin gerir ráð fyrir. Innan 24 klst var bráðabirgða All-on-4® gómur festur á tannplantana og skilaði það strax jákvæðri útlitsbreytingu á brosi viðskiptavinarins.
Síðar var tveimur tannplöntum komið fyrir í stað jaxla í neðri gómi til að tryggja betri stöðugleika fyrir endanlegu brúna.
Að lokum voru settar upp varanlegar tennur. Í efri kjálka  All-on-4® gómur og neðri kjálka endanleg brú – Í báðum tilfellum smíðað  úr sterku sirkóníum efni sem sameinar góða endingu og náttúrulegt útlit..

Árangurinn

Meðferðin tók aðeins 5 mánuði og þurfti aðeins þrjár heimsóknir til tannlæknis. Nýju tennurnar eru stöðugar, fallegar og náttúrulegar í útliti og þægilegar að nota. Þessi breyting varð til þess að viðskiptavinur okkar endurheimti sjálfsöryggi og almenn lífsgæði.



Pantaðu núna!

Ertu með spurningar?