Leiðrétting á tannbili og ójöfnum framtönnum með sirkonium krónum
Verkefnið sem þurfti að leysa
Viðskiptavinur,54 ára,leitaði til okkar með áhyggjur af útliti á framtönnum í efri gómi. Hann var með væga skekkju og sýnileg bil á milli tanna (diastema) sem gerði brosið ójafnt og áberandi litabreytingar á tönnum. Óskir hans voru að fá samræmt og náttúrulegt bros sem hæfði andlitsdráttum hans betur.
Lausnin
Sem fyrsta skref var framkvæmd EMS biofilm-meðferð sem er árangursrík tannhreinsun sem fjarlægir skán og litabreytingar og skapar hreinan og heilbrigðan grunn fyrir áframhaldandi meðferð. Í kjölfarið var, með óskir og væntingar viðskiptavinarins að leiðarljósi, hannað nýtt bros með áherslu á rétt hlutföll og lögun tanna. Út frá þessari stafrænu hönnun voru útbúnar sirkóníum krónur fyrir efri framtennur. Náttúrulegr útli sirkonium efnisins gaf krónunum fágað og eðlilegt yfirbragð. Litur og lögun féllu fullkomlega að náttúrulegum tönnum í kring og úr varð samfelld og eðlileg heild.
Árangurinn
Meðferðinni lauk í einni heimsókn og árangurinn var strax sýnilegur. Nýju krónurnar sköpuðu fallegt, samræmt og náttúrulegt bros sem uppfyllti væntingar viðskiptavinarins í hvívetna.
Með endurnýjuðu brosi fann viðskiptavinurinn fyrir auknu sjálfstrausti og heildaryfirbragð hans – ekki aðeins andlitið, heldur útlitið í heild – er nú mun samræmdara og betra.