Tannplantar í stað jaxla og zirkóníum krónur fyrir náttúrulegt bros
Verkefnið sem þurfti að leysa
64 ára viðskiptavinur okkar hafði smám saman í gegnum árin misst nokkra jaxla í bæði efri og neðri gómi. Afleiðingin var sú að honum gekk sífellt verr að tyggja. Þess utan var ástand framtanna í efri góm orðið slæmt, einkum frá fagurfræðilegu sjónarmiði. Til að endurheimta bæði virkni og útlit ráðlögðum við umfangsmikla tannuppbyggingu með það markmið að hjálpa viðskiptavininum að geta brosað óhindrað á ný og notið uppáhaldsmatarins án óþæginda.
Lausnin
Við endurnýjuðum tennurnar sem vantaði í jaxlasvæðum í efri og neðri gómi með tannplöntum. Í efri góm þurfi að framkvæma beinuppbyggingu (sinus lift) til að tryggja nægjanlegan styrk fyrir örugga festu tannplantanna.Eftir að allt var gróið voru zirkóníum brýr settar á tannplantana. Efri framtennurnar voru líka byggðar upp með zirkóníum krónum eftir vandlegan undirbúning.
Tannplantar veita traustan og varanlegan grunn til að endurheimta jaxla og zirkóníum krónur tryggja náttúrulegt og fallegt bros.
Árangurinn
Meðferðin var framkvæmd í tveimur áföngum á ellefu mánuðum. Með vel heppnaðri tannuppbyggingu fékk viðskiptavinurinn aftur eðlilegt bit og bros, og lífsgæði hans jukust til muna. Nú getur hann brosað af sjálfsöryggi og notið matar án takmarkana.