Alvarleg tannholdssýking og tannmissir – All-on-4®: Fastur gómur á tannplanta á 48 klst.
Verkefnið sem þurfti að leysa
Viðskiptavinurinn, sem var 74 ára, kom til okkar og var langt genginn með tannholdssýkingu (periodontitis) og búinn að missa mjög margar tennur. Þeim tönnum sem eftir voru var ekki viðbjargandi og því þörf á heildar endurnýjun. Markmið okkar var að finna fasta lausn sem myndi endurheimta bæði getu til að tyggja og náttúrulegt bros á stuttum tíma – og því var valið All-on-4® tannplantameðferð.
Lausnin
Í fyrstu heimsókn voru fjarlægðar tennur sem ekki var hægt að bjarga, og fjórum hágæða Nobel Biocare tannplöntum komið fyrir í bæði efri og neðri gómi.
Innan 48 klukkustunda frá aðgerð fékk viðskiptavinurinn fastan bráðabirgðagóm (All-on-4® brú), sem strax leit vel út og virkaði vel til að matast.
Tannplantarnir greru fullkomlega á innan við sex mánuðum og þá var hægt að ljúka meðferðinni með endanlegum gómum. Með stafrænum mælingum voru sérsmíðaðir zirkonium brýr/gómar sem voru fínstilltir í nokkrum mælingum og prófunum. Endanlega lausnin er náttúruleg í útliti, sterk og þægileg í daglegri notkun.
Árangurinn
All-on-4® meðferðin tók alls sex mánuði. Viðskiptavinurinn getur nú notið matar án takmarkana, hann hefur aukið sjálfstraust sitt aftur og brosir af að vild.